Opnunartími

Virka daga frá 10:00 - 18:00
Laugardaga frá 11:00 - 16:00

Netklúbburinn

Um Sportland

Sportland rekur glæsilega verslun í húsnæði sínu að Grensásvegi 11 þar sem viðskiptavinir okkar geta fundið allt til íþróttaiðkunar. Við sérhæfum okkur einnig í þjónustu beint við íþróttafélög og hópa með því að reka bæði almenna smá- og heildsölu. Fyrirtækinu er skipt í annars vegar smásölusvið og hins vegar heildsölu- og félagaþjónustusvið og vinna þessi svið saman að því að veita þeim íþróttafélögum sem eru í viðskiptum við fyrirtækið heildstæða þjónustu. Auk þess er verslunin Heilsuland í sama húsnæði og Sportland og munu verslanirnar saman veita heildstæða þjónustu með íþróttavörur, sjúkra- og stoðkerfisvörur. Þannig er markmiðið að Sportland/Heilsuland geti verið “one stop shop” fyrir viðskiptavini okkar.

Starfsmenn Sportlands

Atli Viðar Björnsson  atlividar@sportland.is
Pétur Bjarnason       petur@sportland.is
Ásmundur Arnarsson    asi@sportland.is
Jónas Grani Garðarsson grani@sportland.is
Alexander Freyr Einarsson alexander@sportland.is  

Hér fyrir neðan eru þau merki sem við bjóðum uppá og svo heimasíður merkjanna til að skoða þau betur. Nánari upplýsingar fást í síma:

571-1000 eða með tölvupósti, sportland@sportland.is

Umbro:
Íþróttafatnaður, Búningar, Fótboltaskór, Boltar, ýmsir skór, sérhæft í fótboltabúningum, handboltabúningum og eins í almennum íþróttafatnaði. England, Noregur, Svíðþjóð, Írland, N-Írland, Man. City, Fylkir, Grindavík og spila í Umbro svo eitthvað sé nefnt.
www.scantrade.no -katalogues

Uhlsport:
Fótboltamerki, búningar, fatnaður, skór og eitt öflugasta markmannsmerkið sem þekkist á markaðnum, með hanska og útbúnað. Meirihluti markvarða í efstu deildum víða um heim nota Uhlsport hanska. Espanyol og Stjarnan spila í Uhlsport búningum.
www.uhlsport.de

Kempa:
Handboltamerki, búningar, fatnaður, skór, boltar. Eina merkið í heiminum sem sérhæfir sig í handboltavörum. Mjög heitt í handboltanum. Landslið Íslands og Þýskalands spila í Kempa
www.kempa-handball.de

Mizuno:
Við erum með mikið úrval af vönduðum hlaupaskóm. Starfsfólk okkar hefur mikla þekkingu á þessu sviði og við munum finna réttu skóna fyrir þig, innanfótarstyrktir, hlutlausir eða jafnvel utanvega… Mizuno framleiðir þetta allt og við eigum það til. Einnig erum við með frábæra handboltaskó sem margt af okkar besta handboltafólki er að nota. Einnig gaddaskór fyrir frjálsíþróttafólkið.
www.mizuno.com

Better Bodies og Gasp:
Sjóðheit merki með fatnað í líkamsræktina. Better Bodies er með frábær föt í ræktina bæði fyrir dömur og herra, flott snið og mikið úrval. GASP er með flotta línu af fötum fyrir stráka, víð snið sem henta “stórum og sterkum”!
www.swedishfitness.se

Sjúkravörur og þjálfunarbúnaður:
Einnig bjóðum við allt í sjúkratöskuna s.s. teip, teygjubindi, kælisprey, kælipokar, hitakrem, hælsærisplástra ofl ofl. Sjúkravörur sem lið eins og Arsenal, Chelsea og fleiri lið í ensku úrvaldeildinni notast við.
Einnig ýmis konar þjálfunar vörur s.s. hraðastigar og grindur, fitumælar, nuddbekkir, nuddvörur, þunnar æfingadýnur ofl.

uhlsport
Mizuno
umbro
Better Bodies
GASP
Kempa
Sportland ehf. | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími: 571-1000 | Netfang: sportland@sportland.is

Netvistun